Maður vill að sjálfsögðu sýna íbúðina frá sinni bestu hlið. En fasteignasalinn er að leita að allt öðrum hlutum.
Benedikt Briem
Það er alltaf smá fiðringur (og við skulum alveg viðurkenna það, smá stress!) í maganum áður en fasteignasali mætir heim til að verðmeta eignina manns.
Maður vill að sjálfsögðu sýna íbúðina frá sinni bestu hlið. Maður þrífur í hólf og gólf, kveikir á ilmkerti og felur draslið inni í skáp. En þótt hreint heimili sé frábært, þá er fasteignasalinn að leita að allt öðrum hlutum til að geta réttlætt hátt söluverð.
Hér eru 5 hlutir sem skipta raunverulegu máli í verðmatinu og sem er gott að hafa á hreinu áður en bjallan hringir:
Fasteignasalar eru atvinnumenn; þeir sjá alveg í gegnum óhreinan kaffibolla á borðinu eða leikföng á gólfinu. Það sem þeir (og væntanlegir kaupendur) eiga hins vegar erfitt með að sjá fram hjá er of mikið af dóti. Ef það er of mikið af stórum húsgögnum, þykkum teppum eða kössum virkar íbúðin minni en hún í raun er.
Gott ráð: Hleyptu birtu inn, dragðu frá gluggum og reyndu að sýna eins mikið af gólfplássi og þú getur. Það gefur tilfinningu fyrir stærð og möguleikum.
Fasteignasalinn er að leita að rökum til að verðmeta eignina hátt. Ný máling er fín, en hvenær var skipt um ofnalagnir? Hver setti upp nýju rafmagnstöfluna? Ef þú getur lagt fram skýra, tímasetta og (helst) vottaða sögu um framkvæmdir, þá hækkar það verðið umtalsvert. Kaupendur borga meira fyrir öryggi.
Það er algengur misskilningur að það eigi að þegja yfir því að einn glugginn leki stundum í stórhríð eða að það sé smá raki í geymslunni. Fasteignasalinn þinn vinnur fyrir þig og hann þarf að vita þetta. Vertu algjörlega hreinskilin(n). Salinn getur þá sett rétt verð á eignina strax og tekið þetta fram í söluyfirliti.
Að fela galla endar næstum alltaf með afsláttarkröfum og lögfræðiþrasi eftir á.
Ef þú, eða fyrri eigandi, tókst niður vegg til að opna eldhúsið eða bjóst til aukaherbergi í bílskúrnum, þá er salinn að fara að spyrja að einu: „Eru til teikningar af þessu hjá byggingarfulltrúa?“
Ef þú ert með samþykktar teikningar, hafðu þær klárar. Ef breytingarnar eru ósamþykktar, segðu salanum það strax svo hann lendi ekki í ógöngum með lánastofnun kaupandans seinna í ferlinu.
Þegar fólk kaupir íbúð í fjölbýli er það að stórum hluta að kaupa ástandið á blokkinni og sameigninni. Salinn þarf að vita hvernig húsfélagið stendur. Er stór framkvæmd á næsta leiti? Var verið að mála þakið í fyrra?
Biddu formanninn um nýjustu fundargerð og yfirlit yfir stöðu hússjóðs áður en salinn mætir. Sterkt húsfélag gerir eignina þína mun verðmætari.
Fasteignasalinn þinn vill vera vopnaður bestu mögulegu upplýsingunum til að geta selt eignina þína fljótt og á góðu verði. En við vitum vel hversu erfitt það er að grafa upp gamlar kvittanir og muna nákvæmlega hvenær hlutirnir voru gerðir.
Þess vegna mælum við með því að þú byrjir að halda utan um söguna strax í dag.
Á Eignasaga.is geturðu stofnað frían aðgang, skráð niður allar framkvæmdir, geymt kvittanir og fengið iðnaðarmenn til að kvitta fyrir verkin sín rafrænt. Þegar verðmatið fer svo fram, smellir þú á einn takka og afhendir salanum fullkomna og staðfesta viðhaldssögu.
Boligmappa hefur skráð 1,7 milljónir eigna í Noregi. Saga þeirra segir okkur margt um hvert Ísland er að stefna.
Stutt og hagnýtt — þetta eru hlutirnir sem skipta máli þegar verkið er búið.